Myndin sýnir dæmi. Þú sérð þína útgáfu áður en þú pantar, og smávægilegur munur getur verið á lit og staðsetningu.
Svartur vasapeli með nafni – grafinn með laser
5.295 kr.
Mattur svartur vasapeli úr ryðfríu stáli (120 × 92 mm). Við grefum nafn, dagsetningu eða merki með laser á framhliðina – áletrunin verður björt og silfruð þar sem stálið kemur í ljós.
- Við förum yfir hverja pöntun áður en við merkjum
- 3–5 virkir dagar · merkt á Krókhálsi
- Persónuleg gjöf við öll tilefni
- Örugg greiðsla · kort eða greiðsluhlekkur
Afhending
Algengur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Við sendum um allt land og þú getur fylgst með pöntuninni undir Rekja pöntun. Einnig er hægt að sækja á Krókháls 6, 110 Reykjavík.
Skil og skipti
Sérmerktar vörur eru framleiddar sérstaklega fyrir þig. Sjá nánar í skilmálum.
Vörulýsing
Svartur vasapeli með nafni – grafinn með laser
Þessi stílhreini vasapeli úr ryðfríu stáli er með mattri svartri húð, skrúfuðum stálstappa og festingu svo stappinn týnist ekki. Við gröfum nafn, dagsetningu, kveðju eða merki með laser á framhliðina, á 70 × 95 mm flöt. Laserinn tekur svörtu húðina af svo stálið kemur í ljós, og áletrunin verður björt, silfruð og skýr á móti svörtu. Pelinn er 120 × 92 mm og passar vel í jakkavasa eða veiðitöskuna.

Svartur vasapeli með nafni – svona hannar þú hann
- Smelltu á Hannaðu hér og skrifaðu nafn, dagsetningu, upphafsstafi eða stutta kveðju. Veldu letur sem passar.
- Áttu merki eða teikningu? Hladdu því upp sem SVG-skrá og settu það á pelann.
- Settu pelann í körfuna. Við förum yfir hönnunina áður en við grefum.
Grafið er á framhliðina. Bakhliðin er svört og ómerkt.
Af hverju bara texti og SVG?
Laserinn fjarlægir húðina í einum tóni, svo ljósmyndir henta ekki. Texti og vektormerki (SVG) verða hins vegar skörp og falleg í silfri á svörtum fletinum. Hönnunartólið sýnir þér hvernig áletrunin lendir og passar að ekkert fari út fyrir grafflötinn. Viltu frekar ljósmynd? Skoðaðu þá hvítan vasapela með mynd.
Svartur vasapeli með nafni – gjöf við öll tilefni
Hann er vinsæl gjöf fyrir pabba, afa og vini, í fertugs- og fimmtugsafmæli, fyrir steggjun, svaramenn og veiðifélagið, og sem fyrirtækjagjöf með merki. Skoðaðu líka bleikan vasapela með nafni og upptakara með segli.
Vörulýsing
- Efni: ryðfrítt stál með mattri svartri húð og stálstappa
- Stærð: 120 × 92 mm
- Grafflötur: 70 × 95 mm á framhlið
- Aðferð: lasergröftur, áletrunin verður silfruð
- Hönnun: texti og SVG-skrár
Lestu meira um lasergröft.
- Merkt á Íslandi. Þekking og reynsla í yfir 20 ár.
- Mannleg yfirferð. Hver pöntun er skoðuð áður en hún fer í framleiðslu.
- Gjöf sem enginn annar á. Þitt nafn, þín mynd, þín hugmynd.
Hvað segja viðskiptavinir?
Engar umsagnir enn. Eftir afhendingu biðjum við viðskiptavini um umsögn og mynd, og þær birtast hér.
Skrifa umsögnTengdar vörur
-
Töff lyklakippa með þinni mynd
2.995 kr. -
Símahulstur fyrir Iphone með þinni mynd
4.490 kr. -
Töff Merkt Símahulstur (Retro)
4.995 kr. -
Lyklakippa með mynd og texta
2.995 kr.





