Previous
Blár brúsi með nafninu Jón

Blár brúsi með mynd og nafni – 500 ml stálbrúsi

4.495 kr.
Next

Hvítur brúsi með mynd og nafni – 500 ml stálbrúsi

4.995 kr.
Hvítur brúsi með ræktarmynd, mynd og nafninu Jón

Myndin sýnir dæmi. Þú sérð þína útgáfu áður en þú pantar, og smávægilegur munur getur verið á lit og staðsetningu.

Sérmerkt vara · merkt á Íslandi

Dökkblár brúsi með grafnu nafni eða merki – 500 ml stálbrúsi

4.995 kr.

Mattur dökkblár stálbrúsi í cola-lögun með stálloki. Við grefum nafn, texta eða merki fyrirtækisins í brúsann með laser – gröfturinn tekur bláu húðina af svo stálið kemur fram í silfurlit.

Hannaðu hér
Upplýsingar
Allt sem þú þarft að vita.
Gott að vita

Merkingin er grafin með laser og verður silfruð þar sem bláa húðin er tekin af. Aðeins texti og merki á SVG-formi – ekki ljósmyndir (jpg/png).

Afhending

Algengur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Við sendum um allt land og þú getur fylgst með pöntuninni undir Rekja pöntun. Einnig er hægt að sækja á Krókháls 6, 110 Reykjavík.

Skil og skipti

Sérmerktar vörur eru framleiddar sérstaklega fyrir þig. Sjá nánar í skilmálum.

Vörulýsing

Vatnsbrúsi úr tvöföldu, einangruðu ryðfríu stáli í klassískri cola-lögun, 500 ml og tæplega 27 cm hár. Hann er mattur dökkblár með stálloki og heldur drykknum köldum eða heitum.

Grafið með laser. Við grefum hönnunina framan á brúsann. Laserinn tekur bláu húðina af svo burstað stálið kemur í ljós – merkingin er silfruð, varanleg og slitnar ekki af. Grafflöturinn er 6 × 12 cm á neðri, beina hluta brúsans.

Nafn eða merki. Í hönnunartólinu velur þú nafn – lóðrétt eða lárétt – eða merki með nafni fyrir neðan. Breyttu textanum og letrinu eins og þú vilt. Smelltu á merkið í sniðmátinu og settu inn þitt eigið merki sem SVG-skrá. Tilvalið fyrir starfsmannagjafir – sama merki og nafn hvers og eins fyrir neðan.

Gott að vita: Gröfturinn er einlitur (silfraður) og ekki er hægt að grafa ljósmyndir, aðeins texta og SVG-merki. Myndirnar á síðunni eru tölvugerðar til að sýna útlitið, svo lokaútgáfan getur verið örlítið frábrugðin.

Af hverju Merkt?
  • Merkt á Íslandi. Þekking og reynsla í yfir 20 ár.
  • Mannleg yfirferð. Hver pöntun er skoðuð áður en hún fer í framleiðslu.
  • Gjöf sem enginn annar á. Þitt nafn, þín mynd, þín hugmynd.
Umsagnir

Hvað segja viðskiptavinir?

Engar umsagnir enn. Eftir afhendingu biðjum við viðskiptavini um umsögn og mynd, og þær birtast hér.

Skrifa umsögn
Fullkomnaðu gjöfina
Meira með nafni.
0