Lýsing
AWDis Neon hettupeysa JH004
Skær og þægileg hettupeysa sem hentar vel fyrir eigin hönnun, hópa og fyrirtækjamerkingar. Mjúkt flísefnið að innan heldur vel á hita og hátt pólýesterhlutfallið hentar vel fyrir DTF-prentun og vínil.
Eiginleikar
- 85% pólýester og 15% ringspun-bómull
- 280 g/m²
- Afslappað snið
- Tvöföld hetta og kengúruvasi
- Mjúkt, burstað flísefni að innan
- Fáanleg í 4 neonlitum
- Stærðir S–2XL
Athugið: Neonlitirnir geta verið skærari en þeir birtast á skjá.
Hannaðu þína hettupeysu
Smelltu á „Hannaðu hér“ og bættu við eigin mynd, merki eða texta. Þú sérð uppsetninguna í hönnunartólinu áður en þú leggur inn pöntun. Verðið getur breyst eftir stærð og fjölda merkinga.
Framleiðsla og afhending
Hettupeysan er merkt hjá Merkt.is í Árbæ. Hönnunin er framleidd með DTF-prentun eða vínil, eftir því hvað hentar vörunni og hönnuninni best. Venjulegur framleiðslutími er 4–10 virkir dagar. Hægt er að sækja pöntun í Krókháls 6 eða fá hana senda.
Myndgæði og skil
Notaðu mynd í góðri upplausn til að fá sem besta útkomu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að hafa heimild til að nota myndir, merki og annað efni sem hlaðið er inn.
Persónumerktum vörum er ekki hægt að skila nema um framleiðslugalla eða mistök af okkar hálfu sé að ræða. Tilkynna þarf athugasemdir innan tveggja daga frá móttöku.





