Previous
Previous Product Image

1000 andlita bollinn.

Price range: 3.995 kr. through 4.490 kr.
Next

Derhúfa – margir litir.

3.395 kr.
Next Product Image

Stikker

Price range: 3.990 kr. through 5.290 kr.

Endingarmiklir límmiðar í hæsta gæðaflokki

Okkar frábæru límmiðar sameina nýjustu UV prenttækni og einstaka límgetu sem tryggir að hönnunin þín endist til lengri tíma. Þessir límmiðar bjóða upp á framúrskarandi endingu, sterka viðloðun og nánast ótakmarkaða hönnunarmöguleika – fullkomnir fyrir alla.

Við bjóðum uppá 3 stærðir – A3 og A4. Þú raðar eins mörgum hlutum, hvort sem er logo, mynd eða þú setur texta, á eitt skjal. Við sjáum svo um að prenta og þú sækir til okkar eða færð sent.

Þú getur núna búið til þína eigin límmiða með sérsniðnu lausninni okkar. Þú smellir á hönnunarhnappinn hér fyrir neðan og byrjar að setja upp þína eigin premium stikkers.

Límmiðarnir eru framleiddir með nákvæmni með hágæða UV DTF prentun sem skilar skærum litum sem dofna ekki,  hvort sem er  fyrir sól eða regni.

Create a Gang Sheet
Bæta á óskalista
Bæta á óskalista
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , ,

Lýsing

Stikker

Stikker eru fyrir þá sem vilja meira en venjulegan límmiða.
Þetta er hágæða UV límmiði sem við notum til að merkja flestalla harða fleti,  heldur sér einstaklega vel og hentar bæði inni og úti.

Límmiðarnir eru prentaðir með UV tækni sem skilar skærum litum og fallegri áferð, og eru hannaðir til að endast þar sem þeim er komið fyrir. Þeir henta sérstaklega vel á slétt yfirborð eins og plast, málm, gler og málaða fleti.

Ath: Við mælum með því að setja álímda hluti í uppþvottavél.

Hvort sem um er að ræða lógó, texta eða sérhannaða grafík þá færðu stikker sem lítur út eins og gæðavara.

Af hverju stikker frá Merkt?

Mjög sterkt efni sem heldur festu vel.

Litir sem dofna ekki.

Vatnsheldir og veðurþolnir.

Falleg, hrein áferð.

Einfalt í notkun og uppsetningu

Henta jafnt fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Gott að vita

Þessir límmiðar eru UV DTF límmiðar í hæsta gæðaflokki. Eins og allar yfirborðsmerkingar geta þeir slitnað með tímanum eftir notkun og aðstæðum.

Einfalt í notkun.

Hreinsaðu yfirborðið á þeim flöt sem á að merkja.

Losaðu yfirfilmuna frá, gott að losa upp frá horni, ef fast er þá nota oddhvassan hlut eins og nælu til að losa.

Settu límmiðann á flötinn, passaðu að setja jafnt á svo ekki myndist loftbólur.

Þrýstu vel niður með puttum, strjúktu vel yfir til að festa vel.

Fjarlægðu síðan yfirfilmuna hægt af.

*Við mælum ekki með að setja í uppþvottavél.

Frekari upplýsingar

Stærð

A4, A3

Shopping cart

0
image/svg+xml

Það eru engar vöru í körfunni

Continue Shopping
0