Magnpantanir fyrir fyrirtæki og hópa
Þín hugmynd.
Við merkjum.
Fatnaður, húfur, brúsar, gjafavörur og fleira – sérmerkt fyrir fyrirtæki, hópa og viðburði. Segðu okkur hvað þig vantar og við finnum réttu útfærsluna.
Einfalt ferli
Þú segir okkur hvað vantar.
Við hjálpum þér að velja vöru, merkingu og magn. Þú færð skýrt tilboð áður en nokkuð fer í framleiðslu.
Segðu okkur frá verkefninu
Vara, magn, skilafrestur og hvernig merkingin á að líta út.
Við finnum réttu lausnina
Við metum vöruval, merkingaraðferð og hagkvæmustu útfærsluna.
Þú færð tilboð
Skýrt verð og næstu skref áður en pöntunin er staðfest.
Vörur og merkingar
Lausnir sem passa verkefninu.
Við vinnum með fyrirtækjum, félögum, skólum, hópum og viðburðum – hvort sem verkefnið er lítið eða stórt.
Bolir og peysur
Vinnufatnaður, viðburðabolir, hópapeysur og gjafir með prenti eða útsaumi.
Húfur og töskur
Derhúfur, húfur, pokar og töskur með útsaumi, prenti eða merki.
Brúsar og fleira
Brúsar, bollar, glös og fjölbreyttar vörur fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Prent og útsaumur
DTF-Vínill, útsaumur, laser- og eða UV-prentuð merki valin eftir efni og notkun.
Merkt á Íslandi
Magnpantanir
án vesen.
Við sameinum vöruval, merkingu og framleiðslu á einum stað. Yfir 20 ára reynsla í merkingum – þú getur treyst á okkur.
Óska eftir tilboði
Segðu okkur hvað þú ert með í huga.
Þú þarft ekki að vera með allt ákveðið. Gefðu okkur grunnupplýsingarnar og við hjálpum þér áfram.
Viltu frekar tala við okkur?Sími 620 1969 · sala@merkt.is
Upplýsingar fyrir tilboð
Algengar spurningar
Gott að vita.
Verð og afhending ráðast af vörunni, magninu og merkingaraðferðinni. Við förum yfir það allt í tilboðinu.
Hvað þarf ég að panta mörg eintök?
Lágmarksmagn fer eftir vöru og merkingaraðferð. Sendu okkur áætlaðan fjölda og við finnum hagkvæmustu leiðina.
Getið þið hjálpað með vöruval?
Já. Segðu okkur hver á að nota vöruna, við hvaða tilefni og hvert verðbilið er. Við leggjum þá til hentuga kosti.
Hvaða gögn þurfið þið fyrir merkinguna?
Best er að fá logo eða hönnun í vektorformi, til dæmis PDF, AI eða SVG. Einnig er hægt að nota PNG-skrá í 300 dpi án alls bakgrunns. Ef það er ekki til skoðum við hvaða gögn þú ert með. Vinnslugjald við uppsetningu merkingar er 2.490 kr. Við bjóðum einnig upp á hönnun merkinga gegn tímagjaldi.
Hvað tekur framleiðslan langan tíma?
Framleiðslutími fer eftir vöru, magni og álagi. Skilafrestur kemur skýrt fram áður en pöntun er staðfest.
