Greiðsluskilmálar
Greiðslur
Vörur í vefverslun er hægt að greiða fyrir með millifærslu, debit, kreditkorti og Netgíró. Vefgreiðslur kredit og debitkorta fara fram í gegnum greiðslukerfi Mypos og eru öll samskipti dulkóðuð.
Pöntunin er felld niður ef greiðsla hefur ekki borist innan 5 daga.
Verð
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Verð á netinu geta breyst án fyrirvara.
Afhending vöru
Yfirleitt er afgreiðslutími vöru um 3-5 virkir dagar eftir að greitt hefur verið. Bródering tekur um þó um viku og sporsetning einnig. Afgreiðslutími lengist þegar líður að frí- eða álagstímabilum s.s. jólum. Sé varan ekki til á lager mun sölufulltrúi hafa samband. Hægt er að sækja í verslun eða fá sent með Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.
Töff socks ehf ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í flutningi. Við tökum 3-5 virka daga til að merkja vörurnar hjá okkur.
Skila- og endurgreiðsluréttur
Ekki er hægt að skila sérmerktum vörum.
Skilafrestur er 30 dagar á meðan vara er enn til sölu í verslun að því tilskildu að varan sé ekki sérmerkt, að hún sé ónotuð, óþvegin og í upprunalegum umbúðum þar sem það á við. Framvísa skal kvittun fyrir vörukaupunum. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Ef vara reynist gölluð er viðskiptavinum boðin sama eða álíka vara í stað þeirrar gölluðu.
Lög og reglugerðir
Um vefverslun Töff socks. gilda lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000, lög um rafræn viðskipti nr. 30/2002 og lög um neytendakaup 48/2003.
Annað
Við áskiljum okkur rétt til leiðréttinga á verði þar sem rangt verð er gefið upp vegna villu eða af öðrum tæknilegum ástæðum. Einnig áskiljum við okkur fullan rétt til að leiðrétta villur í texta, myndum og verði. Efni vefsins er birt með fyrirvara um villur. Töff socks áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vöru fyrirvaralaust.
Við reynum okkar besta að hafa litina á vörum á netinu sem réttasta. Hinsvegar eru skjáir og tæki svo misjöfn og litastillingarnar ekki eins hjá öllum. Við getum því ekki lofað því að litur sem þú sérð á þínum skjá sé hinn sami og í raunveruleikanum.
ATH staðfestingapóstur og annar póstur frá okkur virðist fara oft í SPAM pósthólfið svo endilega fylgist með í SPAM/JUNK pósthólfinu því við höfum samband í gegnum tölvupóst ef við þurfum upplýsingar og þegar varan er tilbúin.
Eigandi léns og vefverslunar
Töff socks
Krókháls 6 (Stuðlahálsmegin, inn í portið)
110 Reykjavík
kt.460122-0900
Bnr. 552-26-460122
VSK: 143454
Símanúmer: 620-1969
Netfang:sala@merkt.is