Myndin sýnir dæmi. Þú sérð þína útgáfu áður en þú pantar, og smávægilegur munur getur verið á lit og staðsetningu.
Nafnapeysa
7.790 kr.
Persónuleg og töff peysa með nafni barnsins!
Falleg barnapeysa þar sem þú setur nafn að eigin vali – fullkomin gjöf og uppáhalds flík í fataskápnum.
Veldu stærð og smelltu á hannaðu hér til að búa til þína eigin nafnapeysu.
- Við förum yfir hverja pöntun áður en við merkjum
- 3–5 virkir dagar · merkt á Krókhálsi
- Persónuleg gjöf við öll tilefni
- Örugg greiðsla · kort eða greiðsluhlekkur
Afhending
Algengur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Við sendum um allt land og þú getur fylgst með pöntuninni undir Rekja pöntun. Einnig er hægt að sækja á Krókháls 6, 110 Reykjavík.
Skil og skipti
Sérmerktar vörur eru framleiddar sérstaklega fyrir þig. Sjá nánar í skilmálum.
Vörulýsing
Vörulýsing
Efni: 50% bómull / 50% polyester. Hlý og mjúk flíspeysa sem hentar vel fyrir daglega notkun og kaldari daga.
Mjúk að innan með brushed fleece áferð sem veitir aukin þægindi. Klassískt snið með riffluðum ermum, hálsmáli og mitti sem heldur formi vel þrátt fyrir mikla notkun.
Framleitt með DTF / sublimation aðferð (fer eftir hönnun) þar sem notast er við hágæða prentun. Nafnið er prentað með skýrri og endingargóðri áferð sem heldur sér vel þrátt fyrir þvott og notkun.
*Vinsamlegast athugið að það geta verið frávik á lit á skjá og á vöru, einnig geta komið upp eðlileg/smávegileg litamisræmi á samskeytum.
Stærðir
(ca. 4–5 ára • 6–8 ára • 10–12 ára • 14–16 ára • 18–20 ára)
Athugið að stærðartafla er í myndasafni. Stærðartaflan er aðeins leiðarvísir, við mælum með að prófa mismunandi stærðir og sjá hver af þeim hentar best.
Persónulegt og Töff merkt
Töff Merkt er fyrirtæki sem auðveldar fólki að persónugera fatnað og fylgihluti á einfaldan og hagkvæman hátt. Það er auðvelt að sjá að Töff merktu vörurnar okkar eru hannaðar til að vera miðpunktur hvers fagnaðar. Við bjóðum uppá mikið úrval af sokkum, húfum, barnafatnaði og fleira. Þar sem okkar sérstaða liggur í að framleiða persónulegan fatnað, þá getur þú á einfaldan hátt útbúið einstakar vörur með því að nota teikniforrit okkar. Þú velur þér vöru, opnar hana í teikniforriti okkar, setur þitt nafn eða hönnun og við framleiðum fyrir þig.
Gjafir
Hvað sem tilefnið er, hvort sem það er afmælisdagur, jól, skólabyrjun eða sérstök stund, þá er nafnapeysa frábær og persónuleg gjöf. Peysa með nafni barnsins verður fljótt uppáhalds flík sem barnið vill klæðast aftur og aftur. Ef þú vilt sérsniðna og Töff merkta vöru á Íslandi, þá ertu á réttum stað!
Merkt.is
Töff Socks ehf er íslenskt fyrirtæki. Við leggjum áherslu á að þróa okkar eigin hönnun sem hentar þér sem töff merktur fatnaður. Þetta þýðir að þú ert að styðja við innlent hagkerfi þegar þú verslar hjá okkur, þar sem við framleiðum allar okkar vörur á framleiðslustað okkar á Akranesi eða í Árbæ Reykjavík. Pantanir eru handgerðar á 4–5 dögum frá pöntun og eru sendar frá okkur í póst sem allra fyrst. Afhendingardagar fara eftir heimilisfangi viðtakanda, þar sem allar sendingar eru sendar með Íslandspósti. Einnig er í boði að sækja í verslun okkar að Krókhálsi 6, 110 Árbær. Hannaðu þína persónulegu nafnapeysu í dag!
Athugið:
– Þú ert ábyrgur fyrir því að slá inn rétt nafn og velja rétta uppsetningu. Töff merkt mun ekki taka ábyrgð á stafsetningarvillum sem eru settar inn af viðskiptavini.
– Þú ert ábyrgur fyrir því að hlaða inn mynd með háum gæðum ef við á. Töff merkt mun ekki taka ábyrgð á mynd prentun í pixlum eða með litla upplausn ef myndin sem gefin var var af litlum gæðum. Þegar mynd er hlaðin upp í teikniforrit okkar þá kemur viðvörun ef mynd er undir viðmiðum, samt sem áður er þetta bara viðmið.
– Með því að kaupa af okkur vörur og þú hleður upp efni, tekur þú á þig alla áhættu, höfundarrétt og ábyrgð er á þess höndum sem gera þessi kaup. Töff tekur enga ábyrgð á innihaldi sem sett er inn.
Skilaréttur:
– Ekki er hægt að skila Töff merktum vörum sem eru persónulega gerðir fyrir þig, nema um sé að ræða mistök í framleiðslu. Athugasemdir skal gera við okkur innan 2 daga eftir viðskiptavinur hefur móttekið vöruna.
- Merkt á Íslandi. Þekking og reynsla í yfir 20 ár.
- Mannleg yfirferð. Hver pöntun er skoðuð áður en hún fer í framleiðslu.
- Gjöf sem enginn annar á. Þitt nafn, þín mynd, þín hugmynd.
Hvað segja viðskiptavinir?
Engar umsagnir enn. Eftir afhendingu biðjum við viðskiptavini um umsögn og mynd, og þær birtast hér.
Skrifa umsögnTengdar vörur
-
Töff Drykkjarbrúsi (Bíll)
4.495 kr. -
Töff Drykkjarbrúsi (Dýr)
4.495 kr. -
Töff Golf Hálskragi
3.490 kr. -
Kjólfatasamfella
3.950 kr.





