Previous
Previous Product Image

Golf bómullarhandklæði

4.690 kr.
Next

Luxus Golfhandklæði

4.290 kr.
Next Product Image

Merktu golfbolta

Price range: 9.990 kr. through 89.900 kr.

Sérmerktar Titleist golfkúlur – persónuleg gjöf sem hittir beint í mark

Gerðu golfið skemmtilegra með sérmerktum Titleist golfkúlum. Við merkjum golfkúlurnar með nafni, stuttum texta, mynd eða merki og leggjum áherslu á vandaða útkomu, skýra merkingu og faglega framsetningu.

Með yfir 20 ára reynslu í merkingum tryggjum við að hönnunin komi vel út á litlum fleti og henti bæði sem gjöf, fyrirtækjagjöf, mótsverðlaun eða skemmtileg viðbót fyrir golfhópinn.

Upplýsingar um merkingu
Við áskiljum okkur rétt til að aðlaga mynd, merki eða texta þannig að efnið skili sér sem best á golfkúlunni.

Hámarksbreidd texta er 19,5 mm, sem er sambærilegt við nafnamerkinguna á kúlunni. Ef um mynd eða merki er að ræða er hámarksstærð 19,5 × 19,5 mm.

Athugið: Þar sem golfkúlur verða fyrir höggum og núningi við notkun getur merkingin slitnað eða dofnað með tímanum. Þetta er eðlilegt við notkun golfkúlna og telst ekki galli á vörunni.

Magnverð fyrir fyrirtæki og golfmót
Við bjóðum sérverð fyrir stærri pantanir, golfmót, fyrirtækjagjafir og hópa. Stofnvinna og aðlögun merkis er innifalin í verði nema annað sé tekið fram.

Bæta á óskalista
Bæta á óskalista
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Vörulýsing

Efni: Merktir golfboltar.

Fjöldi af hágæða merkjum – þú velur þína gerð

Framleitt með Uv prentun. Með þessari aðferð næst hágæða og endingargóð vara. Hámarks hæð og breidd á texta er 19,5 mm

Ending merkingar

Merking á golfkúlum er sett á ytra byrði kúlunnar og getur því slitnað, rispast eða dofnað við eðlilega notkun, sérstaklega við áslátt, núning, sand, vatn, óhreinindi eða snertingu við kylfu og undirlag. Ending merkingar getur verið mismunandi eftir notkun og aðstæðum. Þetta telst eðlilegt slit og er ekki galli á vörunni.

*Vinsamlegast athugið að það geta verið frávik á lit á skjá og á vöru, einnig geta komið upp eðlileg/smávegileg litamisræmi á samskeytum.

Persónulegt og Töff merkt

Töff Merkt er fyrirtæki sem auðveldar fólki að persónugera sokka og aðra fylgihluti á einfaldan og hagkvæman hátt. Það er auðvelt að sjá að Töff merktu vörurnar okkar eru hannaðar til að vera miðpunktur hvers fagnaðar. Við bjóðum uppá fjölda mikið úrval af sokkum, húfum, hálskrögum, nærfötum og meira að segja flík fyrir hundinn þinn. Þar sem okkar sérstaða liggur í að framleiða persónulegan fatnað, þá með einföldum hætti getur þú útbúið einstakar vörur með því að nota teikniforrit okkar. Það er einfalt í allri notkun, þú einfaldlega velur þér vöru, opnar hana í teikniforriti okkar, setur þína mynd ofan á og við framleiðum fyrir þig.

Gjafir

Hvað sem tilefnið er, hvort sem það er afmælisdagur, trúlofunarveisla, skírn eða brúðkaup, þá er persónuleg og merkt gjöf frábær leið til þess að fanga athygli. Töff merkt sérhæfir í fallegu og persónulegu sokkum og fylgihlutin. Ef þú vilt sérsniðna Töff merkta vöru á Íslandi, þá ertu á réttum stað!

Stærðir

Athugið að stærðartafla er í myndasafni. Stærðartaflan er aðeins leiðarvísir, við mælum með að prófa mismunandi stærðir og sjá hver af þeim hentar þér best. Hvað sem tilefnið er, hvort sem það er afmælisdagur, trúlofunarveisla, skírn eða brúðkaup, er persónulegur fatnaður eða fylgihlutir frábær leið til þess að fanga athygli. Ef þú vilt sérsniðna sokka á Íslandi, þá ertu á réttum stað!

Merkt.is

Töff Socks ehf er íslenskt fyrirtæki. Við leggjum áherslu á að þróa okkar eigin hönnun sem hentar þér sem töff merktur fatnaður. Þetta þýðir að þú ert að styðja við innlent hagkerfi þegar þú verslar hjá okkur , þar sem við framleiðum allar okkar vörur á framleiðslustað okkar á Akranesi eða í Árbæ Reykjavík. Pantanir eru handgerðar á 4-5 dögum frá pöntun og eru sendar frá okkur í póst sem allra fyrst. Afhendingardagar fara eftir heimilisfangi viðtakanda, þar sem allar sendingar eru sendar með Íslandspósti. Einnig er í boði að sækja í verslun okkar að Krókhálsi 6, 110 Árbær. Hannaðu þinn persónulega og fullkomna Töff merkta fatnað í dag!

Athugið:

– Þú ert ábyrgur fyrir því að hlaða inn mynd með háum gæðum. Töff merkt mun ekki taka ábyrgð á mynd prentun í pixlum eða með litla upplausn ef myndin sem gefin var var af litlum gæðum. Þegar mynd er hlaðin upp í teikniforrit okkar þá kemur viðvörun ef mynd er undir viðmiðum, samt sem áður er þetta bara viðmið. Í mörgum af okkar vörum er hægt að sjá drög að því hvernig varan sem þú pantar kemur til með að líta út. Einnig er hægt er að byðja okkur um að senda próförk áður en framleitt er.

– Með því að kaupa af okkur vörur og þú hleður upp mynd, tekur þú á þig alla áhættu, höfundarrétt og ábyrgð er á þess höndum sem gera þessi kaup. Töff tekur enga ábyrgð á innihaldi eða mynd sem hlaðið er upp.

Skilaréttur:

– Ekki er hægt að skila Töff merktum vörum sem eru persónulega gerðir fyrir þig, nema um sé að ræða mistök í framleiðslu. Athugasemdir skal gera við okkur innan 2 daga eftir viðskiptavinur hefur móttekið vöruna.

Frekari upplýsingar

Veldu pakka

Titleist TruFeel

Veldu fjölda

12 stk, 24 stk, 60 stk, 120 stk

Shopping cart

0
image/svg+xml

Það eru engar vöru í körfunni

Continue Shopping
0