Previous
Gaming músamotta 61 × 36 cm með synthwave hönnun og GAME ON á skrifborði með lyklaborði og mús

Gaming músamotta 61 × 36 cm – stór skrifborðsmotta

6.490 kr.
Next

Gaming músamotta með bílum – 61 × 36 cm

6.490 kr.
Gaming músamotta með bílum, No Easy Exit hönnun, á skrifborði með lyklaborði og mús

Myndin sýnir dæmi. Þú sérð þína útgáfu áður en þú pantar, og smávægilegur munur getur verið á lit og staðsetningu.

Sérmerkt vara · merkt á Íslandi

Stór músamotta með mynd og texta – 61 × 36 cm

6.490 kr.

61 × 36 cm · 3 mm · myndir og texti

Stór músamotta 61 × 36 cm sem við prentum með þínum myndum og texta yfir alla mottuna. 3 mm þykk með stömum botni og pláss fyrir lyklaborð og mús. Hannaðu hana sjálf(ur) hér á síðunni.

Hannaðu hér
Upplýsingar
Allt sem þú þarft að vita.
Afhending

Algengur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Við sendum um allt land og þú getur fylgst með pöntuninni undir Rekja pöntun. Einnig er hægt að sækja á Krókháls 6, 110 Reykjavík.

Skil og skipti

Sérmerktar vörur eru framleiddar sérstaklega fyrir þig. Sjá nánar í skilmálum.

Vörulýsing

Stór músamotta með mynd og texta – 61 × 36 cm, prentuð yfir alla mottuna

Gerðu skrifborðið að þínu. Á þessa stóru mottu prentum við þína eigin ljósmynd, nafn, liðsmerki eða kveðju í fullum litum, alveg út í brúnir. Hún er 61 × 36 cm, svo lyklaborð og mús komast bæði fyrir, 3 mm þykk og stamur botninn heldur henni á sínum stað.

Stór músamotta með fjölskyldumynd og textanum Fjölskyldan okkar Sumarið 2026

Stór músamotta með mynd – svona hannar þú hana

  1. Smelltu á Hannaðu hér.
  2. Hladdu upp einni eða fleiri myndum, til dæmis landslagsmynd, fjölskyldumynd, gæludýri eða liðsmerki, og stækkaðu yfir alla mottuna.
  3. Bættu við texta, eins og nafni, gamertag eða kveðju, og veldu letur og lit.
  4. Settu mottuna í körfuna. Við förum yfir hönnunina áður en við prentum.

Góð ráð fyrir fallega prentun

Mottan er stór, svo notaðu mynd í eins góðri upplausn og þú getur, helst beint úr myndavélinni eða símanum. Breiðar landslagsmyndir koma sérstaklega vel út. Myndin þarf að ná alveg út í brúnir svo ekki komi hvít rönd, og gott er að hafa nöfn og andlit aðeins frá brúnunum.

Upplýsingar

  • Stærð: 61 × 36 cm
  • Þykkt: 3 mm
  • Stamur botn sem rennur ekki til
  • Skornar brúnir, ekki saumaðar
  • Prentað í fullum lit yfir alla mottuna

Stór músamotta með mynd sem gjöf

Persónuleg gjöf sem er notuð á hverjum degi, fyrir tölvuleikjaspilarann, heimaskrifstofuna eða nýju tölvuaðstöðuna. Hentar vel í jólapakkann, sem afmælisgjöf eða fermingargjöf. Viltu frekar tilbúna hönnun? Skoðaðu gaming músamottuna, eða minni músamottu með mynd og texta.

Af hverju Merkt?
  • Merkt á Íslandi. Þekking og reynsla í yfir 20 ár.
  • Mannleg yfirferð. Hver pöntun er skoðuð áður en hún fer í framleiðslu.
  • Gjöf sem enginn annar á. Þitt nafn, þín mynd, þín hugmynd.
Umsagnir

Hvað segja viðskiptavinir?

Engar umsagnir enn. Eftir afhendingu biðjum við viðskiptavini um umsögn og mynd, og þær birtast hér.

Skrifa umsögn
0