Previous
Bleikur vasapeli með lasergröfnu nafni í silfri

Bleikur vasapeli með nafni – grafinn með laser

5.295 kr.
Next

Vasapeli úr stáli með nafni – grafinn með laser

5.295 kr.
Vasapeli úr stáli með dökkum lasergröfnum texta

Myndin sýnir dæmi. Þú sérð þína útgáfu áður en þú pantar, og smávægilegur munur getur verið á lit og staðsetningu.

Sérmerkt vara · merkt á Íslandi

Svartur vasapeli með nafni – grafinn með laser

5.295 kr.

Mattur svartur vasapeli úr ryðfríu stáli (120 × 92 mm). Við grefum nafn, dagsetningu eða merki með laser á framhliðina – áletrunin verður björt og silfruð þar sem stálið kemur í ljós.

Hannaðu hér
Upplýsingar
Allt sem þú þarft að vita.
Afhending

Algengur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Við sendum um allt land og þú getur fylgst með pöntuninni undir Rekja pöntun. Einnig er hægt að sækja á Krókháls 6, 110 Reykjavík.

Skil og skipti

Sérmerktar vörur eru framleiddar sérstaklega fyrir þig. Sjá nánar í skilmálum.

Vörulýsing

Svartur vasapeli með nafni – grafinn með laser

Þessi stílhreini vasapeli úr ryðfríu stáli er með mattri svartri húð, skrúfuðum stálstappa og festingu svo stappinn týnist ekki. Við gröfum nafn, dagsetningu, kveðju eða merki með laser á framhliðina, á 70 × 95 mm flöt. Laserinn tekur svörtu húðina af svo stálið kemur í ljós, og áletrunin verður björt, silfruð og skýr á móti svörtu. Pelinn er 120 × 92 mm og passar vel í jakkavasa eða veiðitöskuna.

Svartur mattur vasapeli úr stáli með stálstappa, án greftrar

Svartur vasapeli með nafni – svona hannar þú hann

  1. Smelltu á Hannaðu hér og skrifaðu nafn, dagsetningu, upphafsstafi eða stutta kveðju. Veldu letur sem passar.
  2. Áttu merki eða teikningu? Hladdu því upp sem SVG-skrá og settu það á pelann.
  3. Settu pelann í körfuna. Við förum yfir hönnunina áður en við grefum.

Grafið er á framhliðina. Bakhliðin er svört og ómerkt.

Af hverju bara texti og SVG?

Laserinn fjarlægir húðina í einum tóni, svo ljósmyndir henta ekki. Texti og vektormerki (SVG) verða hins vegar skörp og falleg í silfri á svörtum fletinum. Hönnunartólið sýnir þér hvernig áletrunin lendir og passar að ekkert fari út fyrir grafflötinn. Viltu frekar ljósmynd? Skoðaðu þá hvítan vasapela með mynd.

Svartur vasapeli með nafni – gjöf við öll tilefni

Hann er vinsæl gjöf fyrir pabba, afa og vini, í fertugs- og fimmtugsafmæli, fyrir steggjun, svaramenn og veiðifélagið, og sem fyrirtækjagjöf með merki. Skoðaðu líka bleikan vasapela með nafni og upptakara með segli.

Vörulýsing

  • Efni: ryðfrítt stál með mattri svartri húð og stálstappa
  • Stærð: 120 × 92 mm
  • Grafflötur: 70 × 95 mm á framhlið
  • Aðferð: lasergröftur, áletrunin verður silfruð
  • Hönnun: texti og SVG-skrár

Lestu meira um lasergröft.

Af hverju Merkt?
  • Merkt á Íslandi. Þekking og reynsla í yfir 20 ár.
  • Mannleg yfirferð. Hver pöntun er skoðuð áður en hún fer í framleiðslu.
  • Gjöf sem enginn annar á. Þitt nafn, þín mynd, þín hugmynd.
Umsagnir

Hvað segja viðskiptavinir?

Engar umsagnir enn. Eftir afhendingu biðjum við viðskiptavini um umsögn og mynd, og þær birtast hér.

Skrifa umsögn
0