Lýsing
Fruit of the Loom Classic hettupeysa SS224
Klassísk og þægileg hettupeysa sem hentar vel fyrir eigin hönnun, hópa og fyrirtækjamerkingar. Bómullar- og pólýesterblandan er hlý og endingargóð og hentar vel fyrir DTF-prentun og vínil.
Eiginleikar
- 80% bómull og 20% pólýester
- 280 g/m²
- Tvöföld hetta með flötum reimum í sama lit
- Kengúruvasi að framan
- Stroff úr bómull og Lycra við ermar og mitti
- Fáanleg í 8 litum
- Stærðir S–3XL
Athugið: Efnisblandan getur verið mismunandi eftir lit.
Hannaðu þína hettupeysu
Smelltu á „Hannaðu hér“ og bættu við eigin mynd, merki eða texta. Þú sérð uppsetninguna í hönnunartólinu áður en þú leggur inn pöntun. Verðið getur breyst eftir stærð og fjölda merkinga.
Framleiðsla og afhending
Hettupeysan er merkt hjá Merkt.is í Árbæ. Hönnunin er framleidd með DTF-prentun eða vínil, eftir því hvað hentar vörunni og hönnuninni best. Venjulegur framleiðslutími er 4–10 virkir dagar. Hægt er að sækja pöntun í Krókháls 6 eða fá hana senda.
Myndgæði og skil
Notaðu mynd í góðri upplausn til að fá sem besta útkomu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að hafa heimild til að nota myndir, merki og annað efni sem hlaðið er inn.
Persónumerktum vörum er ekki hægt að skila nema um framleiðslugalla eða mistök af okkar hálfu sé að ræða. Tilkynna þarf athugasemdir innan tveggja daga frá móttöku.




