Lýsing
Fruit of the Loom Premium hettupeysa
Vönduð og þægileg Premium-hettupeysa sem hentar vel fyrir eigin hönnun, fyrirtækjamerkingar og hópa. Peysan er úr 70% bómull og 30% pólýester og hefur 100% bómullaryfirborð sem gefur góða áferð og hentar sérstaklega vel fyrir merkingar.
Eiginleikar
- 70% bómull og 30% pólýester
- 100% bómullaryfirborð
- 280 g/m²; Heather Grey er 260 g/m²
- Tvöföld hetta með flötum reimum í sama lit
- Kengúruvasi að framan
- Jersey-styrking við hálsmál
- Stroff úr bómull og elastani við ermar og mitti
- Fáanleg í 5 litum
- Stærðir S–4XL
Athugið: Stærðir 3XL–4XL eru aðeins fáanlegar í Black, Charcoal, Deep Navy og Heather Grey.
Hannaðu þína hettupeysu
Smelltu á „Hannaðu hér“ og bættu við eigin mynd, merki eða texta. Þú sérð uppsetninguna í hönnunartólinu áður en þú leggur inn pöntun. Verðið getur breyst eftir stærð og fjölda merkinga.
Framleiðsla og afhending
Hettupeysan er merkt hjá Merkt.is í Árbæ. Hönnunin er framleidd með DTF-prentun eða vínil, eftir því hvað hentar vörunni og hönnuninni best. Venjulegur framleiðslutími er 4–10 virkir dagar. Hægt er að sækja pöntun í Krókháls 6 eða fá hana senda.
Myndgæði og skil
Notaðu mynd í góðri upplausn til að fá sem besta útkomu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að hafa heimild til að nota myndir, merki og annað efni sem hlaðið er inn.
Persónumerktum vörum er ekki hægt að skila nema um framleiðslugalla eða mistök af okkar hálfu sé að ræða. Tilkynna þarf athugasemdir innan tveggja daga frá móttöku.




