Lýsing
Gildan Softstyle peysa
Mjúk og vönduð peysa án hettu sem hentar vel fyrir eigin hönnun, fyrirtækjamerkingar og hópa. Peysan er úr 80% ringspun bómull og 20% pólýester og hefur 100% bómullaryfirborð sem gefur góða áferð fyrir merkingar.
Eiginleikar
- 80% ringspun bómull og 20% pólýester
- 100% bómullaryfirborð
- 285 g/m²; hvít er 278 g/m²
- Klassískt crew neck snið án hettu
Hannaðu þína peysu
Smelltu á „Hannaðu hér“ og bættu við eigin mynd, merki eða texta. Þú sérð uppsetninguna í hönnunartólinu áður en þú leggur inn pöntun. Verðið getur breyst eftir stærð og fjölda merkinga.
Framleiðsla og afhending
Peysan er merkt hjá Merkt.is í Árbæ. Hönnunin er framleidd með DTF-prentun eða vínil, eftir því hvað hentar vörunni og hönnuninni best. Venjulegur framleiðslutími er 3–5 virkir dagar. Hægt er að sækja pöntun í Krókháls 6 eða fá hana senda.
Myndgæði og skil
Notaðu mynd í góðri upplausn til að fá sem besta útkomu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að hafa heimild til að nota myndir, merki og annað efni sem hlaðið er inn.
Persónumerktum vörum er ekki hægt að skila nema um framleiðslugalla eða mistök af okkar hálfu sé að ræða. Tilkynna þarf athugasemdir innan tveggja daga frá móttöku.




